Rafrænt skylduskilaefni
Áskorun sem leiðir til lausna
Lykilorð:
Skylduskil, Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn, Bókfræðileg skráning, Varðveisla, SjálfvirkniÚtdráttur
Eitt af lögbundnum hlutverkum Landsbókasafns Íslands - Háskólabókasafns er að safna öllu efni sem gefið er út eða ætlað er til dreifingar á Íslandi, gera það aðgengilegt og varðveita það til framtíðar. Það hlutverk nefnist skylduskil og um þau gilda Lög um skylduskil til safna nr. 20/2002. Í því felst að allar bækur, skýrslur, tímarit, dagblöð, tónlist, bæklingar, veggspjöld og ýmislegt annað útgefið efni er skilaskylt til safnsins. Þetta efni hefur tekið miklum breytingum á síðustu árum, þar sem útgáfa er ekki lengur eingöngu á áþreifanlegu formi eins og pappír. Bækur, skýrslur, tímarit og dagblöð eru nú í auknum mæli gefin út rafrænt, sem hefur haft áhrif á innheimtu og skráningu efnisins.
Nú hefur safnið tekið í notkun nýtt kerfi, Lýsu sem auðveldar skráningu þessa efnis stórlega. Með því getur safnið ekki aðeins safnað skýrslum heldur einnig skráð þær og tryggt að markmið skylduskilalaga séu uppfyllt. Að auki hefur þessi nýja lausn breytt miklu í skráningu rafræns efnis yfirhöfuð. Rafbækur og rafrænar hljóðbækur sem berast í miklu magni lenda ekki lengur í flöskuháls við skráningu heldur eru skráðar með aðstoð þessarar lausnar.

Niðurhal
Útgefið
Tölublað
Kafli
Leyfi
Copyright (c) 2025 Kristín Lilja Th. Björnsdóttir, Kristjana Mjöll Jónsd. Hjörvar (Author)

Greinar í tímaritinu eru gefnar út undir leyfinu (Creative Commons Attribution-NonCommercial 4.0 International License).