"Hér er lítill hluti af öllum Færeyjum": Söfnun, skipulagning og miðlun handrita og einkaskjala

Höfundar

  • Heiðrún Hödd Guðmundsdóttir Landsbókasavnið Author

Lykilorð:

Skjalasöfn, Handritasöfn, Færeyjar

Útdráttur

Greinin er byggð á meistararitgerð höfundar „Hér er lítill hluti af öllum Færeyjum“: Söfnun, skipulagning og miðlun handrita og einkaskjala. Ritgerðin var unnin undir handleiðslu Ágústu Pálsdóttur, prófessors.

Í verkefninu var fjallað um hvernig staðið er að söfnun, skipulagningu og miðlun handrita og einkaskjala á handritadeild Landsbókasafns Íslands, Þjóðskjalasafni Íslands, Borgarskjalasafni Reykjavíkur, Landsbókasafni Færeyja (f. Landsbókasavnið), Þjóðskjalasafni Færeyja (f. Tjóðskjalasavnið), Konunglega bókasafninu í Kaupmannahöfn (d. Det Kgl. Bibliotek) og Árnasafninu í Kaupmannahöfn (d. Den Arnamagnæanske Samling). Tilgangur ritgerðarinnar var að skoða stöðu mála og fá yfirsýn yfir verklag. Í framhaldinu er hægt að setja fram tillögur um frágang handrita og einkaskjala fyrir handritadeild Landsbókasafns Færeyja, með það að leiðarljósi að miðla á vef. 

Um höfund (biography)

  • Heiðrún Hödd Guðmundsdóttir, Landsbókasavnið

    Heiðrún Hödd Guðmundsdóttir útskrifaðist með Cand.mag í menningarfræði frá KU (Kaupmannarhafnarháskóla) árið 2009 og MIS í upplýsingafræði frá HÍ árið 2022. Hún starfar sem upplýsingafræðingur á Landsbókasafninu í Færeyjum.

Heiðrún Hödd Guðmundsdóttir

Niðurhal

Útgefið

2024-05-30

Tölublað

Kafli

Greinar

Flokkar